Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Vann með báðum liðum
Föstudagur 17. febrúar 2006 kl. 11:04

Vann með báðum liðum

Körfuknattleikskappinn Nökkvi Már Jónsson lagði skóna á hilluna fyrir nokkrum árum, en hann var sigursæll á ferli sínum með Grindavík og Keflavík.

Svo skemmtilega vill til að Nökkvi var einmitt í fyrstu bikarliðum beggja, með Keflavík árið 1993 og Grindavík tveimur árum síðar.

Þú varst í fyrsta bikarmeistaraliði Keflavíkinga og Grindvíkinga, Hvor leikurinn er eftirminnilegri og hvor sigurinn var sætari?

Frómt frá sagt man ég lítið eftir fyrsta bikarmeistaratitli Keflvíkinga frá 1993 er við öttum kappi við lið Snæfells. Þó þykist ég muna að við mættum ákveðnir til leiks, staðráðnir í því að koma höndum okkar á bikarinn. Leikurinn æxlaðist eins og að var stefnt og ef ég man rétt skildu um 40 stig liðin að í lokin. Líklega hefur Kristinn Geir verið bestur á vellinum, hann var að sigla inn í vor ferils síns um þessar mundir.

Hvað leikinn með Grindavík 1995 varðar, gegn Njarðvík, þá er minnið ívið skárra og þar af leiðandi er sá leikur eftirminnilegri. Samfara því að Njarðvíkingar voru sigurstranglegri var um fyrsta stóra titil Grindavíkur að ræða. Hann var því sætari en sigurinn með Keflavík 1993. 

Var hlutverk þitt mismunandi í liðunum tveimur?

Ekki rekur mig minni til þess, ég hef sennilega spilað áþekka rullu. Þó má segja að mér hafi verið ætluð meiri ábyrgð með liði Grindavíkur enda var það að mestu skipað ungum og óreyndum leikmönnum, ef frá er talinn Guðmundur Bragason, þá landsliðsfyrirliði.

Hvenær og af hverju skiptir þú yfir til Grindavíkur?

Ég skipti yfir í Grindavík um sumarið 1993. Ástæðan var sú að Guðmundur Bragason hafði verið ráðinn þjálfari hjá Grindavík þá um sumarið og hafði metnað til að tefla fram sterku liði næsta tímabil. Ég man að ég var hikandi í fyrstu en þegar Hjörtur Harðarson sýndi vilja til að skipta einnig yfir reyndist ákvörðunin auðveld. Það tímabil sem fór í hönd reyndist svo eitt hið skemmtilegasta á mínum ferli. 

Hver var munurinn á að spila með þessum tveimur liðum?

Munurinn var einkum sá að í liði Keflavíkur voru virkir landsliðsmenn í hverri stöðu, og jafnvel á bekknum. Lið Grindavíkur var hins vegar öllu óreyndara og mjög ungt þegar ég steig þar um borð. Það kom þó ekki í veg fyrir að liðið varð deildarmeistari vorið 1994.

Hverjar eru sterku og veiku hliðar liðanna í dag?

Ég hygg að styrkur Keflavíkur felist fyrst og fremst í mikilli reynslu sem leikmenn þeirra hafa viðað að sér, einkum í úrslitaleikjum sem þessum. Slík reynsla ætti að koma þeim til góða, einkum ef lítið er skorað og taugaspenna er mikil. Grindvíkingar eru með engu síðri leikmenn en Keflvíkingar en stöðugleikann vantar og getur leikur þeirra þ.a.l. stundum verið fálmkenndur.

Hvernig heldurðu að úrslitaleikurinn fari og hvoru liðinu heldur þú með?

Ég ber ekkert skynbragð á það hvernig þessi leikur muni þróast. Ég vona hins vegar að leikurinn verði spennandi og að Grindavík standi uppi sem sigurvegarar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024