Valur hættir með Njarðvík
Valur Ingimundarson þjálfari meistaraflokks karla baðst lausnar frá störfum sem þjálfari félagsins eftir fund með stjórn Njarðvíkur í gær. Stjórn félagsins varð við ósk Vals og hættir hann störfum hjá félaginu frá og með gærdeginum. Þetta kemur fram á heimasíðu Njarðvíkur.?
Stjórn deildarinnar þakkar Val samstarfið og óskar honum og hans fjölskyldu alls hins besta í framtíðinni.