HSS
HSS

Íþróttir

Valur Axel með þriðja gullið
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 5. júlí 2023 kl. 07:53

Valur Axel með þriðja gullið

Þriðji heimsmeistaratitill DansKompanís í keppninni World Cup Dance sem fram fer í Braga í Portúgal leit dagsins ljós í gær.

Það var einstaklingsatriði Vals Axels, Captain Jack Sparrow, sem vann til gullverðlauna og fyrir árangur sinn (96,4 stig af 100 mögulegum) var Val Axel boðið að keppa í gala en aðeins allra bestu atriðin fá slíkt boð. Danshöfundur er Helga Ólafsdóttir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn