Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Valsmenn í heimsókn á Nettóvellinum
Sunnudagur 27. júlí 2014 kl. 09:00

Valsmenn í heimsókn á Nettóvellinum

Keflvíkingar fá Valsmenn í heimsókn á Nettóvöllinn í kvöld klukkan 19:15. Liðin eru í svipuðum málum í Pepsi-deildinni, Keflavík í 5. sæti með 17 stig en Valur kemur þar á eftir í 6. sætinu með 15 stig. Á heimasíðu Keflvíkinga er að venju farið yfir sögu liðanna í góðum pistli. Keflvíkingar kveikja upp í grillinu góða þar sem stuðningsmenn eru velkomnir í borgara og gos gegn vægu verði. Kristján Guðmundsson þjálfari mætir svo og leggur línurnar fyrir leikinn.

Efsta deild
Keflavík og Valur hafa leikið 94 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli. Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik. Keflavík hefur unnið 32 leiki, Valur hefur hins vegar sigrað 36 sinnum en 26 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 135-148, Val í hag.  Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999 og 5-3 sigri Keflavíkur árið 2008.  Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964. Fimm leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Hörður Sveinsson hefur gert fimm mörk og þeir Magnús Þórir Matthíasson, Daníel Gylfason, Jóhann Birnir Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson hafa skorað eitt mark hver.  Sá leikmaður Keflavíkur sem hefur skorað flest mörk gegn Val í efstu deild er Steinar Jóhannsson sem gerði níu mörk en næstur er Jón Ólafur Jónsson með átta.

Public deli
Public deli

Bikarkeppnin
Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997.  Keflavík hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík.  Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú bikarmörk gegn Val en þau komu öll í 5-1 sigri í framlengdum leik árið 1997.  Leikurinn var í 8 liða úrslitum en Keflavík varð einmitt bikarmeistari þetta ár.

Síðast
Fyrr í sumar léku liðin í Pepsi-deildinni en sá leikur fór fram á gervigrasvellinum í Laugardal.  Keflavík vann þann leik þar sem Magnús Þórir Matthíasson gerði eina mark leiksins.

Bæði lið
Þó nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir Keflavík og Val í gegnum árin og hafa tveir leikmenn okkar áður leikið fyrir Val en það eru Hörður Sveinsson og Halldór Kristinn Halldórsson.  Áður höfðu m.a. Guðmundur Viðar Mete, Jakob Már Jónharðsson, Adolf Sveinsson, Bjarni Sigurðsson, Sigurjón Kristjánsson og Hafsteinn Guðmundsson leikið fyrir bæði liðin.  Þá hafa þessi lið ekki síður haft sömu þjálfara en Óli B. Jónsson, Guðbjörn Jónsson, Ian Ross, Ingi Björn Albertsson, Willum Þór Þórsson og Kristján Guðmundsson hafa allir þjálfað bæði lið.