HSS
HSS

Íþróttir

Útkall! Keflavík mætir ÍA í kvöld
Sunnudagur 25. maí 2008 kl. 14:48

Útkall! Keflavík mætir ÍA í kvöld

Stórleikur 4. umferðar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu er vafalítið viðureign Keflavíkur og ÍA sem fram fer á Sparisjóðsvellinum í Keflavík kl. 19:15 í kvöld. Fyrir leiki kvöldsins eru Keflvíkingar með fullt hús stiga eða 9 stig eftir þrjá sigurleiki í röð. Skagamenn hafa 4 stig en þeir hafa unnið einn leik, gert jafntefli og tapað einum leik. Ekki þarf að tíunda að von er á mikilli baráttu á Sparisjóðsvellinum í kvöld og þá verður væntanlega hart barist í stúkunni enda bæði lið með skemmtilegar stuðningsmannasveitir.
 
Dómari leiksins í kvöld verður Ólafur Ragnarsson og honum til aðstoðar eru Einar Sigurðsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Alls hafa Keflavík og ÍA mæst 83 sinnum í efstu deild og hafa Skagamenn talsverða yfirburði í viðureignum liðanna. ÍA hefur sigrað í 46 leikjum, 12 sinnum hefur orðið jafntefli en Keflavík hefur unnið 25 leiki og leitast eftir að breyta sigrunum í 26 í kvöld.
 
Óvíst er hvort þeir Nicolai Jörgensen og Guðmundur Viðar Mete verði með í kvöld en þeir voru ekki í leikmannahópi Keflavíkur gegn HK í síðustu umferð sökum meiðsla.
 
Jafnan er hart barist þegar Keflavík og ÍA mætast en síðasta deildarviðureign liðanna fór 3-3 þar sem Hallgrímur Jónasson skoraði tvívegis og Guðjón Árni Antoníusson gerði eitt mark. Þó er það deginum ljósara að það skal enginn búast við því að Keflvíkingar spyrni knettinum af velli liggi Skagamaður í sárum sínum enda forðast brennd börn yfirleitt eldinni.
 
Keflavík-ÍA
Sparisjóðsvöllurinn í Keflavík
Í kvöld kl. 19:15
 
Allir á völlinn!
Bílakjarninn
Bílakjarninn