Úrslitakeppnin í körfunni: Leikir vikunnar
Úrslitakeppni Intersport-deildarinnar hefst í kvöld og má segja að nú sé ballið byrjað fyrir alvöru. Suðurnesjaliðin þrjú eru að sjálfsögðu í 8-liða úrslitunum, en þar kljást Grindvíkingar við KR, Keflavík við Tindastól og Njarðvík við Hauka.
Þá hefjast úrslitin hjá konunum á mánudaginn þar sem Keflavík og Grindavík eigast við.
KEFLAVÍK-TINDASTÓLL
Keflvíkingar mæta Tindastóli í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitunum í kvöld. Þeir hefðu eflaust viljað aðra andstæðinga þar sem þeir töpuðu illa fyrir þeim þegar þeir mætti síðast á Sauðárkrók.
Engu að síður eru Keflvíkingar með umtalsvert sterkari mannskap sem hefur sýnt hvað í þeim býr öllum keppnum vetrarins. Þeir gáfu ekki tommu eftir gegn stórum evrópskum liðum, en áttu líka til að falla gersamlega niður í meðalmennsku gegn liðum sem voru fyrirfram talin veikari, þannig að augljóst er að rétt hugarfar verður að vera til staðar fyrir leikina.
Gunnar Einarsson meiddist á fingri í vikunni, en flest bendir til þess að kappinn ætli að harka af sér og spila þrátt fyrir allt. Stólarnir eru ekki eins heppnir þar sem Nick Boyd, einn sterkasti maður þeirra, er búinn að vera frá æfingum síðan á sunnudag og mun tæplega leika með þeim í kvöld.
Falur Harðarson, annar þjálfara Keflvíkinga, segir rimmuna leggjast vel í sig. „Nú eru úrslitin að fara í gang og þessu bíða menn eftir allan veturinn. Við gerðum útum allar okkar vonir um deildarmeistaratitil með því að tapa illa á Króknum um daginn og ætlum nú að sýna okkar rétta andlit.“
GRINDAVÍK-KR
Grindvíkingar mæta KR á heimavelli sínum á morgun. Grindvíkingar unnu báðar viðureignir liðanna í vetur og verða að teljast líklegir til að komst áfram úr þessu einvígi. Framan af tímabili virtust Grindvíkingar vera algerlega óstöðvandi, en lentu svo í lægð eftir áramót. Ef nýju erlendu leikmennirnir ná að blómstra ættu lærisveinar Friðriks Inga að ná að rétta úr kútnum og gera harða atlögu að titlinum.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga segir að nú sé komið að skemmtilegasta tíma vetrarins sem allir bíði eftir í ofvæni. „Þetta leggst ljómandi vel í mig. Þetta eru allt þannig lið í úrslitakeppninni að ekki er á vísan að róa með sigur. KR er sterkt lið með þrjá góða útlendinga og nokkra íslenska landsliðsmenn þannig að þetta verða hörkuleikir. Ég vona líka að allir sem koma nálægt körfuboltanum snúi bökum saman til að fá sem flesta áhorfendur á leiki.“
NJARÐVÍK-HAUKAR
Njarðvíkingar mæta Haukum í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni á morgun. Njarðvíkingar áttu ekki í miklum erfiðleikum með Hafnfirðingana í fyrri viðureignum þeirra í vetur og hafa síðan bætt við sig bandarískum leikmanni að nafni Will Chavis. Sá mun eflaust koma til með að styrkja Njarðvíkinga nokkuð, en Haukar eru hins vegar sýnd veiði en ekki gefin eins og kom í ljós þegar þeir unnu góðan sigur á Keflvíkingum í síðustu umferð deildarkeppninnar.
Friðrik Ragnarsson þjálfari segist lítast vel á átökin. „Ég er bara bjartsýnn fyrir þetta. Það er búinn að vera uppgangur í okkar liði að undanförnu og við höfum haft góð tök á Haukum í vetur. Núna er hins vegar meira i húfi og við eigum eftir að þurfa að hafa fyrir hlutunum, enda eru Haukar með ágætt lið. Það má segja að það sé lykilatriði fyrir okkur að Frikki nái góðum tökum á Manciel, og komi sterkur inn yfirhöfuð enda er hann gríðarlega mikilvægur fyrir okkur.“
1. deild kvenna
KEFLAVÍK-GRINDAVÍK
Mikill Suðurnesjaslagur verður í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna þegar deildarmeistarar Keflvíkinga mæta Grindvíkingum til að skera úr um það hvort liðið komist í úrslitarimmuna. Fyrsti leikur liðanna verður á mánudaginn.
Keflvíkingar hafa verið í algerum sérflokki eftir áramót þar sem þær hafa unnið alla sína leiki og hafa unnið alla titla sem hafa verið í boði í vetur. Grindvíkingar hafa hins vegar verið á stöðugri uppleið í sínu spili og voru ekki fjarri því að leggja Keflvíkinga að velli í síðasta leik liðanna. Enginn vafi leikur þó á því að bæði liðin verða að mæta til leiks tilbúnar að berjast til síðasta manns því að nú skiptir hver leikur máli og ekkert má útaf bera.
Pétur Guðmundsson, þjálfari Grindvíkinga, segir sínar stúlkur hvergi smeykar fyrir átökin. „Við ætlum að sýna Keflvíkingum að við getum staðið í þeim. Við höfum verið að treysta mikið á KeKe að undanförnu, en í síðustu leikjum hafa yngri stelpurnar eins og Ólöf verið að koma sterkar inn auk þess sem Sólveig hefur verið jöfn allan vetur. En ef við hugsum um okkar leik í vörn og sókn þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af leikmönnum Keflvíkinga.“
Hjörtur Harðarson hjá Keflavík segir sínar stúlkur staðráðnar í að slá ekki slöku við eftir velgengnina í vetur. „Við erum búnar að vinna 16 leiki í röð og ætlum bara að halda áfram. Við þurfum að hægja á Kananum þeirra og vonum að hinar stelpurnar eigi ekki góðan leik. Grindvíkingar eiga fleiri góðar stelpur og eru betri en fjórða sætið segir til um en breiddin hjá okkur er það mikil að það er erfitt að ráða við okkur.“
Leikjaskipulag:
Fimmtudagur 11/3:
Keflavík-Tindastóll
Föstudagur 12/3:
Njarðvík-Haukar
Grindavík-KR
Laugardagur 13/3:
Tindastóll-Keflavík
Sunnudagur 14/3:
Haukar-Njarðvík
KR-Grindavík
Mánudagur 15/3:
Keflavík-Grindavík (kv.)
Þriðjudagur 16/3:
Njarðvík-Haukar
Grindavík-KR
Keflavík-Tindastóll
Miðvikudagur 17/3: