Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Föstudagur 9. apríl 1999 kl. 21:03

ÚRSLITAKEPPNIN Í KÖRFUKNATTLEIK

Einu sinni enn Keflavík - Njarðvík Nágrönnunum og efstu liðum DHL-deildarinnar tókst að brjóta á bak aftur mótspyrnu Ísfirðinga og Grindvíkinga í fjórum leikjum og tryggja sér réttinn til að leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á þessu síðasta ári aldarinnar. Báðar leikjahrinurnar voru spennandi og skemmtilegar en einbeitingu og þrek Ísfirðinga og Grindvíkinga þraut fyrr en hjá þrautreyndum og eldhertum liðum áratugarins, Keflavík og Njarðvík, sem unnið hafa flesta titla síðustu 20 ára og í raun mjög við hæfi að þau berjist um þennan síðasta titil tuttugusta aldarinnar. Herbert Arnarson lék frábærlega með Grindvíkingum á úrslitakeppninni og var óumdeilanlega besti leikmaður liðsins ásamt Bandaríkjamanninum Warren Peeples. „Það eru náttúrulega brjáluð vonbrigði að vera dottnir úr leik í fjórum leikjum eftir að hafa unnið fyrsta leikinn á útivelli. Við töpuðum t.d. tveimur í röð á heimavelli sem er alveg ótækt. Ég er alls ekki sáttur við þessi úrslit en allir leikirnir voru jafnir og sigurinn getað fallið báðum liðum í skaut en heppnin er hluti af leiknum og að þessu sinni var hún Keflavíkurmeginn. Sigurði Ingimundarsyni þjálfara Keflvíkinga tókst blása sjálfstrausti aftur í lið sitt eftir óvænt tap á heimavelli í fyrsta leiknum og var hann að vonum ánægður með þrjá sigurleiki í röð og sæti í úrslitunum. „Við náðum í fyrri hálfleik að leika á okkar hraða en hleyptum þeim of nærri okkur í seinni hálfleik. Ég er afar ánægður með að hafa náð að vinna Grindvíkinga tvisvar í röð á heimavelli því þeir eru með mjög gott lið og ekki auðsóttir heim. Nú eru draumaúrslitin framundan, sem er sannarlega skemmtilegt fyrir fólkið í bænum, og við ætlum okkur að vinna þá seríuna líka“ Fannar Ólafsson var að margra mati lykilmaður Keflvíkinga en hann stjórnaði málum undir körfunni beggja megin á vellinum, hirti fjölda mikilvægra frákasta og varði skot. „Í kvöld náðum við að spila á okkar hraða. Við lögðum upp með að stöðva Hebba og Warren og láta minni spámennina taka skotin og það gekk ekki upp hjá þeim, því miður fyrir þá. Okkar megin þá gekk boltinn vel manna á milli og opin færi sköpuðust sem við nýttum okkur vel. Nú eru Njarðvíkingarnir næstir og stefnum við að sigri í fyrsta leiknum á þriðjudaginn.“ Einar Einarsson náði góðum árangri með Grindvíkurliðið eftir að hafa tekið við liðinu í erfiðri stöðu. Hann var ekki ánægður með að vera úr leik. „Þetta gekk ekki upp og því fór sem fór. Við byrjuðum mjög illa og lékum ekki eins agaðan leik og áður, sérstaklega var varnarleiknum ábótavant. Keflvíkingar eru með of gott lið til að gefa 13 stiga forskot. Ég held að tapið í þriðja leiknum í Keflavík hafi setið í mínum mönnum enda áttum við að vinna þann leik. Við sýndum þó að Grindvíkingar gefast aldrei upp og maður kemur manns stað þegar á bjátar.“ Teitur Örlygsson og félagar þurftu að taka á öllu sínu til að setja Ísfirðinga út í kuldann Teitur Örlygsson lék afar vel gegn Ísfirðingum og telur hann Njarðvíkinga hafa titil að verja. „Við erum hæstánægðir að komast óskaddaðir í gegnum Ísfirðingana því þeir létu okkur sannarlega hafa fyrir hlutunum. Nú tekur við allt annar handleggur og skemmtilegt verkefni framundan en að sjálfsögðu kemur ekkert annað til greina en að hampa Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð.“ Friðrik Rúnarsson þjálfari Njarðvíkinga var himinlifandi yfir sigrinum og að lið hans hefði tryggt sér sæti í úrslitinum. „Leikurinn í fyrrakvöld spilaðist eins og við höfðum vonað. Við náðum að veðra góða byrjun þeirra og ná tökum á leiknum sem við síðan gáfum ekki eftir. Vörn okkar var sterk og leikmenn ákveðnir að klára þetta á einum erfiðasta útivelli landsins. Ég tek hatt minn ofan fyrir Ísfirðingum því þeir komu afar vel undirbúnir til leiks og hver leikur slagur frá upphafi til enda. Þá hlakka ég til viðureignanna við Keflvíkinga. Þessi lið þekkja hvort annað náið enda keppt margsinnis til úrslita.“
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024