HSS
HSS

Íþróttir

Úrslit úr Valitor-bikarnum: Grindvíkingar áfram
Fimmtudagur 26. maí 2011 kl. 09:46

Úrslit úr Valitor-bikarnum: Grindvíkingar áfram

Grindvíkingar fóru áfram í bikarkeppninni í gærkvöldi eftir sigur á KA en Sandgerðingar og Njarðvíkingar féllu úr keppni. Grindvíkingar skoruðu í sitthvorum hálfleiknum og náðu tveggja marka forystu en Michal Pospisil skoraði bæði mörkin. KA-menn klóruðu í bakkann með marki stundarifjórðungi fyrir leikslok en ekki tókst þeim að jafna.

Sandgerðingar steinlágu í Bolungarvík 5-1 en mark Reynir gerði Þorsteinn Þorsteinsson. Njaðvíkingar máttu sömuleiðis sætta sig við tap er þeir fengu HK í heimsókn í gærkvöldi. Lokatölur 0-1 og Njarðvíkingar og Reynismenn því úr leik.

Enn er óvíst hvort að leikur Keflvíkinga og Hattar Egilsstöðum fari fram, til stóð að fresta leiknum sem fara átti fram í kvöld á Egilsstöðum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

VF-Myndir: Ólafur Örn Bjarnason og lærisveinar hans í Grindavík er komnir í 16-liða úrslit Valitor-bikarsins