HSS
HSS

Íþróttir

Fimmtudagur 6. nóvember 2003 kl. 22:55

Úrslit í Hópbílabikarnum

Karlar

Njarðvík-KR
Njarðvík vann góðan heimasigur á KR í Hópbílabikar karla í kvöld. Lokastaðan var 82-69. Heimamenn náðu forystunni í fyrsta leikhluta og héldu henni allt til loka, en hálfleikstölur voru 45-32. Lykillinn að sigrinum hlýtur að hafa verið vörn Njarðvíkinga sem var óhemju þétt allan leikinn og hélt skotnýtingu KR-inga í 30%. Þó má ekki gleyma þætti Egils Jónassonar. Þessi ungi leikmaður átti kvöldið þar sem hann skoraði fjölda stiga og lék vel í vörninni þar sem hann verði 7 skot KR-inga. Egill, sem er 214 sm á hæð, er einungis 19 ára og virðist vera gríðarlegt efni. Friðrik Ragnarsson var himinlifandi með Egil og sagði að frammistaða hans hafi skipt sköpum í leiknum. Aðrir leikmenn stóðu sig einnig vel, t.d. Brenton og Brandon auk þess sem Friðrik og Páll áttu góðan leik undir körfunni.
Að leik loknum var Friðrik þjálfari ánægður með sína menn. „Þetta var flottur leikur! Við höfðum alltaf stjórn á leiknum og sigurinn var aldrei í hættu. Vörnin gekk alveg upp og var sérstaklega þétt undir þar sem Frikki, Palli og Egill voru.“
Stigahæstir Njarðvíkinga voru Brandon Woudstra (19 stig, 9 fráköst og 9 stoðsendingar), Egill Jónasson (18 stig, 9 fráköst og 7 varin skot) og Brenton (17 stig). Friðrik Stefánsson átti svo teiginn í kvöld og tók 18 fráköst.
Ingvaldur Magni Hafsteinsson skoraði 20 stig fyrir KR og var þeirra besti maður.
Njarðvík er því komið í undanúrslit og mætir þar liði Grindavíkur en Tindastóll mætir sigurliðinu úr rimmu Keflavíkur og Hamars.

Grindavík-ÍR
Grindvíkingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum með því að leggja ÍR-inga örugglega að velli á heimavelli sínum. Lokatölur voru 109-92 eftir að heimamenn höfðu leitt allan leikinn, en ÍR vann fyrri leikinn með þriggja stiga mun.
Daniel Trammel átti geisilega góðan leik þar sem hann skoraði 26 stig, tók 16 fráköst og varði 4 skot. Hann leiddi sitt lið í þessum tölfræðiþáttum en einnig í villum þar sem hann spilaði einungis í 26 mínútur áður en hann fékk sína fimmtu villu og varð að fara af velli. Darrel Lewis kom honum næstur með 23 stig og Páll Axel Vilbergsson skoraði 20.
 Stigahæstur ÍR-inga Var Reggie Jessie sem átti sannkallaðan stórleik og skoraði 44 stig, en Ólafur Sigurðsson skoraði 17 stig.

Konur

Grindavík-ÍR
Grindavíkurstúlkur sigruðu ÍR 74-48 á heimavelli sínum. Með því komust þær áfram í undanúrslitin þar sem þær munu mæta liði KR.
Mikill munur var að sjá til Grindavíkurstúlkna í kvöld miðað við síðustu leiki þar sem ekkert hefur gengið upp hjá þeim. Þær mættu til leiks staðráðnar í því að tryggja sér sæti í næstu umferð og byrjuðu með látum. Þær náðu 14 stiga forystu í fyrsta leikhluta og héldu henni til loka.
Pétur Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, var að vonum ánægður með sínar stúlkur þar sem sóknin fór loks að ganga upp hjá þeim og skotin að detta ofan í körfuna. „Þetta var bara eins og síðasti leikur, nema að í þetta sinn nýttum við skotin sem við fengum. Vörnin var góð og við pressuðum stíft og keyrðum upp hraðann. Þannig getum við náð mestu út leiknum og það gekk upp.“
Stigahæstar Grindavíkur voru Petrúnella (19 stig), Sólveig (18 stig) og Jovana (14 stig)

Njarðvík-ÍS
Njarðvík vann ÍS á heimavelli sínum 61-50, en féll þó úr keppni vegna 24 stiga taps í fyrri leik liðanna. Leikurinn var jafn og spennandi en Njarðvík sýndi góða baráttu og seig fram úr í lokin. Auður Jónsdóttir, fyrirliði Njarðvíkur var ánægð með leikinn þrátt fyrir að þátttöku þeirra væri lokið í Hópbílabikarnum. „Þetta var góður leikur, við mættum tilbúnar til leiks og ef við mætum með sama hugarfari í næsta leik mun okkur ganga vel.“ Næsti leikur Njarðvíkur er einmitt gegn ÍS í 1. deildinni á mánudaginn kemur.
Auður var stigahæst heimaliðsins með 18 stig en Andrea Gaines skoraði 17 og tók 12 fráköst.

Undanúrslit karla fara fram 21. nóvember en undanúrslit kvenna verða 29. nóvember.

Bílakjarninn
Bílakjarninn