Bygg
Bygg

Íþróttir

Upphitun fyrir Bikarúrslitin - Spá sérfræðinga
Fimmtudagur 17. febrúar 2011 kl. 10:41

Upphitun fyrir Bikarúrslitin - Spá sérfræðinga

Nú um helgina fara fram úrslitaleikirnir í Powerade bikar karla og kvenna. Hjá konunum mæta Keflvíkingar KR-ingum klukkan 13:30. Keflavíkurstúlkur unnu Hamar nú á dögunum og ekki er langt síðan liðið sigraði KR í deildinni og má búast við hörkuleik í höllinni á laugardaginn enda tvö sigursælustu lið kvennaboltans að mætast. Keflavík hefur 18 sinnum leikið til úrslita og sigrað alls 11 sinnum, síðast árið 2006. Karla leikurinn ætti ekki síður að vera spennandi en þar mæta Grindvíkingar einnig KR klukkan 16:00. Grindvíkingar hafa tapað síðustu fjórum leikjum í deildinni en þegar svona bikarúrslitaleikur er annars vegar, skiptir deildarkeppnin oftast litlu máli. Grindavík hefur fimm sinnum leikið til úrslita í bikarnum og þar af sigrað fjórum sinnum, síðast árið 2006. Við hjá Víkurfréttum náðum tali af nokkrum velvöldum einstaklingum af Suðurnesjum sem teljast sérfróð um körfuknattleik og fengum þau til að spá fyrir um úrslit leikjanna sem fara fram á laugardaginn í Laugardalshöll.


Bílakjarninn
Bílakjarninn

Helga Rut Hallgrímsdóttir leikmaður Grindavíkur


Keflavík - KR
„Þetta verður hörkuleikur þar sem baráttan verður í fyrirrúmi. Ég held að KR vinni leikinn með í kringum 5 stigum.“

Hvað telurðu að muni ráða úrslitum í leiknum?

„Ég held að vörnin ráði úrslitum því ef hún er góð ná liðin auðveldum sóknum. Mistök eru oft mikil í svona bikarleikjum og því held ég að miklu skiptir að ná hröðum sóknum. KR eru mikið baráttulið og eru ótrúlegar í fráköstunum og ef þær munu berjast eins og vanalega, taka þær þetta. En til að KR vinni verða þær líka að stoppa Jackie eða allavega halda henni aðeins frá leiknum. Hún fer alveg fyrir Keflavíkurliðinu. Einnig verða þær að hindra að Birna komist í gang, því ef hún kemst alveg í gang fylgir allt liðið eftir.“

Grindavík - KR

„Ég verð nú að sjálfsögðu að halda með mínum mönnum, segi að þeir vinni leikinn með 5-10 stigum. Held þeir muni ná sjálfstrausti sínu upp og komast úr lægðinni með stæl.“

Hvað mun skipta sköpum í þeim leik?

„Þetta verður frábær leikur. Það lið sem nær upp betri stemningu og hefur meiri vilja til að klára þetta með baráttuna sem verður í fyrirrúmi mun enda uppi sem sigurvegari.“

Heldurðu að gengi liðanna í deildinni muni hafa áhrif á þessa leiki?

„Nei ég held það hjálpi þeim ekki neitt. Það skiptir engu máli hversu marga leiki þú hefur unnið eða tapað í deildinni. Nú er bara einn leikur undir og það þarf að gefa allt í hann svo að hann vinnist.“

Á að skella sér í höllina?

„Að sjálfsögðu!“





Magnús Þór Gunnarsson leikmaður Keflavíkur


Keflavík - KR

„Ég reikna með að Keflavík vinni kvennaleikinn með u.þ.b 7 stigum.“

Hvað mun ráða úrslitum í leiknum?

„Það sem mun ráða úrslitum þar er Birna Valgarðsdóttir, hún er vön að spila þessa leiki og ég held að hún eigi eftir að vera mjög góð í þessum leik.“


Grindavík - KR

„Í karlaleiknum verður þetta vonandi spennandi leikur og ræðst á síðustu sekúndum. Eigum við ekki að segja að Grindavik setji síðasta skotið í.“


Hvað mun skipta sköpum í þessum leik?

„Það sem gerir útslagið er hvort liðið verður minna spennt því í svona leikjum er oft hætta á því að menn verði yfirspenntir og ég held að Grindavík njóti góðs af því, því það reikna allir með sigri KR.“


Mun gengi liðanna í deildinni koma til með að hafa áhrif?

„Gengið í deildinni kemur þessum leik ekkert við fyrir Grindavík því þetta er önnur keppni. En það væri alveg eins sagt að gengi KR í deildinni getur komið í veg fyrir sigur því þeir eru búnir að vinna fullt af leikjum í röð og það styttist í tapleikinn, ég held að sá leikur verði á laugardaginn.“


Á að mæta í höllina?

„Já ég og mínir menn í Keflavík ætlum að mæta mjög glaðir og styðja við bakið á okkar stelpum og vonandi verður sigurhátíð í Keflavík um kvöldið.“