HSS
HSS

Íþróttir

Unnu Hauka í framlengingu
Mánudagur 31. janúar 2005 kl. 13:20

Unnu Hauka í framlengingu

Njarðvíkurstúlkur unnu góðan sigur, 57-59, á Haukum í 1. deild kvenna í framlengdum leik í gær. Jaime Woudstra skoraði sigurkörfuna með skoti frá miðju um leið og leiktíminn rann út.

Haukar, sem lögðu meistara Keflavíkur að velli í bikarleik á dögunum, byrjuðu mun betur og voru yfir í hálfleik, 32-26. Þær leiddu svo mestallan seinni hálfleikinn og höfðu 12 stiga forskot þegar um fimm mínútur lifðu af leiknum.

Með mikill baráttu náðu Njarðvíkingar að jafna leikinn og knýja fram framlengingu. Þar skiptust liðin á að skora en Haukar misstu boltann í sókn þegar örskammt var eftir af leiknum. Þá voru þær einu stigi yfir en Woudstra, sem átti stórleik fyrir Njarðvík, hitti úr ævintýralegu skoti, eins og fyrr sagði, og tryggði mikilvægan sigur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.

Þrátt fyrir sigurinn voru Njarðvíkingar ekki að leika sem best að sögn heimasíðu félagsins.  Sóknarleikurinn var sérlega mistækur þar sem þær töpuðu 37 boltum.

Agnar Mar Gunnarsson, þjálfari Njarðvíkur, var kampakátur með sigurinn, enda hefði sætið í úrslitakeppninni verið nánast úr sögunni ef leikurinn hefði tapast.
„Stelpurnar léku hörkuvörn á lokakaflanum og hún tryggði sigurinn. Við tókum leikhlé þegar við vorum 12 stigum undir og ákváðum að trúa á þetta og fengum mikið sjálfstraust til að klára leikinn.“

Agnar bætti því við að enn væri nokkuð í að skáka Haukum í fjórða sætinu, en þau væru samt bjartsýn. „Við stefnum á úrslitin og getum komist þangað. Við getum unnið öll lið í þessari deild á góðum degi.“

Tölfræði leiksins

VF-mynd úr safni

Bílakjarninn
Bílakjarninn