Unnu allar sínar viðureignir
Suðurnesjamennirnir Daníel Dagur Árnason úr nýstofnuðu Júdófélagi Reykjanesbæjar (JRB) og Ingólfur Rögnvaldsson úr Júdófélagi Reykjavíkur (JR) stóðu sig frábærlega á Íslandsmóti fullorðinna í júdó sem fór fram í íþróttahúsinu Digranesi um helgina.
Daníel keppti í -60 kg flokki og Ingólfur í -66 kg flokki og gerðu þeir félagar sér lítið fyrir og unnu báðir allar sínar viðureignir. Drengirnir hafa verið að gera það gott íþróttinni en þeir unnu báðir til gullverðlauna á RIG í janúar og eru í landsliðshópi Júdósambandsins. Þeir Ingólfur og Daníel munu taka þátt í Íslandsmóti unglinga í flokki u21 árs sem fer fram 29. maí næstkomandi.
