Þriðjudagur 23. október 2007 kl. 10:37
Unndór í stjörnufans í Barcelona
Unndór Sigurðsson þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur í körfuknattleik er staddur í Barcelona á Spáni um þessar mundir en þar hefur hann verið að kynna sér þjálfun og starfsemi hjá einu stærsta íþróttafélagi heimsins, Barcelona. Unndór er að ljúka við BS gráðu í íþróttafræðum hjá Háskóla Reykjavíkur og heimsókn hans til Barcelona er stór liður í náminu.
Barcelona er gríðarlega stórt félag sem á sér langa og farsæla sögu og í raun einstaklega glæsilega. Knattspyrnulið félagsins er eitt af stærstu knattspyrnufélögum heimsins og að jafnaði sækja um 100.000 manns heimaleiki liðsins og er umfang liðsins gríðarlegt. Körfuknattleikslið Barcelona er eitt besta lið Evrópu auk þess sem handboltaliðið er geysilega öflugt. Sem dæmi má nefna hafa knattspyrnu-, körfubolta- og handboltaliðið öll orðið Evrópumeistarar í sinni grein.
Barcelona er magnað félag og það var mikið tækifæri þegar Unndóri bauðst að fara þangað og fylgjast með í rétt rúmar 3 vikur. Í raun ómetanleg reynsla fyrir mann sem er í álíka námi og Unndór og þetta á eftir að reynast kappanum dýrmætt. Heimasíða Njarðvíkur, www.umfn.is náði tali af Unndóri og lét kappinn vel af dvöl sinni ytra.
Spjall umfn.is við Unndór er hægt að lesa með því að smella hér.
Mynd: www.umfn.is – Unndór ásamt knattspyrnukappanum Thierry Henry sem prýðir framlínu Barcelona en hann gekk í raðir liðsins frá Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.