Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Ungur Njarðvíkingur til Ítalíu
Meðfyljandi er viðtal sem Víkurfréttir tóku við Kristinn í fyrra.
Föstudagur 7. júní 2013 kl. 16:19

Ungur Njarðvíkingur til Ítalíu

Kristinn Pálsson samið við ítalska liðið Stella Azzurra

Kristinn Pálsson, 16 ára leikmaður Njarðvíkur og leikmaður yngri landsliða Íslands í körfubolta, hefur samið við ítalska liðið Stella Azzurra og mun hann dvelja næsta árið til að byrja með hjá liðinu þar sem hann mun stunda nám og æfa af krafti en verið er að ganga frá öllum umsóknum og leyfum svo hann geti þá haldið út í júní og æft í mánuð áður en hann kæmi heim aftur og myndi flytja endanlega í haust fyrir upphaf komandi tímabils.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Kristinn þáði boð um að leika með unglingaliðinu Stella Azzurra Rome um síðastliðna páska. Þar tók liðið þátt í sterku U19-ára alþjóðlegu móti sem haldið er árlega á Ítalíu. Neðangreint er tekið af heimasíðu KKÍ:

Kristni gekk vel á mótinu, liðið endaði í 3. sæti á mótinu þrátt fyrir að vera með mjög ungt lið og Kristinn var svo valinn besti ungi leikmaður mótsins, sem verður að teljast góður árangur, en með honum í liði eru strákar sem taldir eru vera á meðal topp 5 efnilegustu leikmanna í Evrópu í sínum árgangi.

Kristinn hafði einnig leikið með liðinu á móti í Barcelona um síðastliðin ár og stóð sig einnig vel þá sem varð til þess að þeir buðu honum aftur í heimsókn núna um páskana og sýndu áhuga á að fá hann til liðs við liðið.


Körfuboltakappinn fyrrum Páll Kristinsson og Pálína Gunnarsdóttir, foreldrar Kristins, fóru með út til að kíkja á aðstæður yfir páskanna og leist mjög vel á. Strákarnir í liðinu búa á heimavist við íþróttahúsið og þar ganga þeir í skóla og æfa körfubolta samhliða náminu af krafti.

Stella Azzurra er í samstarfi við alþjóðlegan menntaskóla í Rome sem kennir eftir bandaríska „High School“ kerfinu þannig að eftir námið yrði hann gjaldgengur í hvaða háskóla sem er í Bandaríkjunum.

Liðið býður upp á fyrsta flokks aðstæður og eru mjög faglegir í starfi. Vel er hugsað um strákana í akademíunni, hjá þeim er kokkur sem eldar fyrir drengina, margir þjálfarar koma að liðinu, upphitunarþjálfari sér um upphitun og teygjur eftir æfingar svo dæmi sé tekið.

www.kki.is