Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Unglingalandsliðsmaður til Keflvíkinga
Páll í búningi Breiðabliks í fyrra. Nú fer hann í Keflavíkurbúninginn. Mynd/fotbolti.net/Hafliði
Miðvikudagur 29. apríl 2015 kl. 10:59

Unglingalandsliðsmaður til Keflvíkinga

Páll Olgeir Þorsteinsson, tvítugur kantmaður sem leikið hefur með landsliðum U-17 og U-19 er genginn til liðs við Keflavík.

Páll Olgeir er fæddur 1995 en hann fór á lán til Víkings um miðbik síðasta sumars en samtals lék hann 13 leiki í Pepsi deildinni fyrir Breiðablik og Víking.

Hann á 18 landsleiki að baki fyrir U-17 og U-19 ára landslið Íslands og hefur skorað í þeim tvö mörk.

Keflavík á fyrsta leik gegn Víkingum á sunnudag og gæti Páll þar leikið gegn sínum fyrrum samherjum.

Keflvíkingum er spáð áttunda sæti Pepsi-deildarinnar hjá vefsíðunni fotbolti.net.


 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024