Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Undirbúningur fyrir Samkaupsmótið í körfu á fullu
Föstudagur 27. febrúar 2009 kl. 15:16

Undirbúningur fyrir Samkaupsmótið í körfu á fullu


Barna- og unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur eru á fullu að undirbúa næsta Samkaupsmót, en mótið verður haldið í Reykjanesbæ helgina 7. og 8. mars 2009.  Samkaupsmótið er eitt af stærstu íþróttamótum landsins og er langstærsta körfuknattleiksmótið. Sem dæmi um stærð mótsins þá hafa þátttakendur síðastliðin ár verið um 830 og komið víðsvegar af landinu. Fjöldi liða hefur verið um 135 og leiknir hafa verið um 350 leikir á einni helgi!  

Það hlýtur að vera eftirtektarvert að andstæðingar á vellinum geti tekið sig saman með þessum hætti og haldið glæsilegt körfuboltamót fyrir krakka á Íslandi en Samkaupsmótið hefur styrkt mjög samstarf íþróttafélaganna Fyrir hvert mót er gefinn út veglegur 20 síðna bæklingur og þar má finna allar upplýsingar um mótið. Helstu styrktaraðilar eru Samkaup og Reykjanesbær.

Boðið er uppá margskonar afþreyingu milli leikja. Öll liðin fara í bíó, í sund og einnig verður Reykjaneshöllin opin alla helgina en þar verða t.d. hoppukastalar, körfubolti, fótbolti, fólf (frisbee-gólf) og margt fleira. Um er að ræða 7.840m² leiksvæði.  Hápunktur mótsins er svo auðvitað kvöldvakan á laugardag en þar koma venjulega fram landsþekktir skemmtikraftar.

Það þarf mikla skipulagningu til að þetta gangi allt saman upp!  Einvala lið sjálfboðaliða frá báðum félögum skipta með sér verkum og markmiðið er ávallt að næsta mót verði enn betra en það síðasta.

Vefsíða mótsins er www.samkaupsmot.blog.is.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024