Bygg
Bygg

Íþróttir

Undanúrslit Powerade bikarsins í kvöld
Fimmtudagur 5. október 2006 kl. 15:50

Undanúrslit Powerade bikarsins í kvöld

Njarðvík og Keflavík verða í eldlínunni í Laugardalshöll í kvöld þegar liðin taka þátt í undanúrslitum Powerade bikarkeppninnar í körfuknattleik. Keflvíkingar mæta Skallagrím í fyrri leik kvöldsins kl. 19 en það lið sem hefur sigur úr býtum mun mæta Njarðvík eða KR í úrslitaleik keppninnar á laugardag.

Njarðvíkingar mæta KR-ingum kl. 21 eða strax að lokinni viðureign Keflavíkur og Skallagríms.

Miðaverða á leikina er kr. 800 en miðinn gildir á báða leiki. Frítt er fyrir börn 16 ára og yngri. Fjölmennum í Laugardalshöll í kvöld og styðjum okkar lið til sigurs.

 

VF-mynd/ Njarðvíkingar urðu fyrsti liða Powerade meistarar

Bílakjarninn
Bílakjarninn