Una Margrét í 17 ára landsliðinu
Keflvíkingar eiga fulltrúa í U17 landsliði Íslands í kvennaflokki, sem tekur þátt í Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Svíþjóð í byrjun júlí. Það er Una Margrét Einarsdóttir sem er fulltrúi liðsins en leikið er í Svíþjóð dagana 4. - 9. júlí. Ísland er í riðli með Hollandi, Englandi og Svíþjóð og er fyrsti leikurinn gegn heimastúlkum.