Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

UMFN í góðum gír á 75 ára afmælinu
Á aðalfundinum voru nokkrir UMFN félagar heiðraðir fyrir góð störf.
Mánudagur 22. apríl 2019 kl. 09:00

UMFN í góðum gír á 75 ára afmælinu

Ólafur Eyjólfsson var endurkjörinn formaður á aðalfundi Ungmennafélags Njarðvíkur sem haldinn var 10. apríl sl. á 75 ára afmæli félagsins. Fram kom að rekstur félagsins er góður og jákvæður hjá öllum deildum félagsins.  Stjórn félagsins er óbreytt.

Gestir bæði ÍSÍ og UMFÍ mættu á fundinn og afhentu viðurkenningar. Helga Jóhannesdóttir stjórnarmaður frá UMFÍ færði félaginu áritaðan platta og blóm í tilefni afmælisins.  Þráinn Hafsteinsson, formaður Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ afhenti formönnum þriggja deilda UMFN, knattspyrnu-, körfuknattleiks- og sunddeildinni endurnýjun á vottun sem fyrirmyndarfélag/deild ÍSÍ.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri óskaði félaginu til hamingu og talaði um gott samstarf félagsins við Reykjanesbæ og nauðsyn þess að ungmenna- og íþróttafélög væru öflug þar sem þau skiluðu ómetanlegu starfi í barna- og unglingastarfi.

Á fundinum  var Ólafi Eyjólfssyni veitt gullmerki félagsins og Thor Hallgrímsson fékk silfurmerki. Bronsmerki fengu Harpa Kristín Einarsdóttir, Guðný Björg Karlsdóttir og Hjörvar Örn Brynjólfsson. Einnig var Leifi Gunnlaugssyni veitt gullmerki með lárviðarsveig á lokahófi knattspyrnudeildarinnar sem fram fór í okt. 2018.

Að lokum tók til máls Ólafur Thordersen yngri sem afhendir Ólafsbikarinn sem afhentur var í fyrsta skipti 2003.  

Ólafsbikarinn sem afhentur hefur verið síðan 2003 hlaut að þessu sinni Harpa Kristín Einarsdóttir fyrir störf sín fyrir sunddeild UMFN en Ólafur Thordersen afhenti bikarinn.

Ólafur formaður fékk gullmerki en líka afmælisplatta frá Ungmennafélagi Íslands.

Knattspyrnu-, körfuknattleiks- og sunddeildirnar fengu endurnýjun á vottun sem fyrirmyndarfélag/deild ÍSÍ.