Um 4000 Íslandsmeistaratitlar til Reykjanesbæjar
Flestir koma frá körfuknattleiksdeildum UMFN og Keflavíkur
Í tilefni þess að Reykjanesbær fagnar 20 ára afmæli sínu á þessu ári, nánar tiltekið þann 11. júní, hafa hin ýmsu svið bæjarins verið að taka saman tölulegar upplýsingar. Íþrótta- og tómstundasvið hefur tekið saman þann fjölda einstaklinga sem hafa orðið Íslandsmeistarar í íþróttum í bæjarfélaginu á þessu 20 ára tímabili en ætla má að talan sé í kringum 4000. Frá þessu er greint á heimasíðu Reykjanesbæjar.
Íþrótta- og tómstundasvið hefur undanfarin 10 ár í samstarfi við Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB) staðið fyrir uppskeruhátíð þann 31. desember. Þá koma saman þeir sem hafa verið tilnefndir sem besti íþróttamaðurinn ár hvert í þeim íþróttagreinum sem stundaðar eru innan vébanda ÍRB. Sú hefð hefur skapast að Reykjanesbær heiðrar á þessari hátíð alla þá sem hlotið hafa Íslandsmeistaratitil á árinu sem er að líða. Sérhver Íslandsmeistari fær gullpening um hálsinn með áletruninni „Til hamingju Íslandsmeistari.“
Á síðustu hátíð voru öll fyrri met slegin varðandi fjölda einstaklinga sem náð hafði þessum árangri eða alls 269 Íslandsmeistarar. Í þau tíu ár sem þessi hátíð hefur verið haldin er samanlagður fjöldi Íslandsmeistara tæplega 2000 og gera má ráð fyrir því að á síðustu 20 árum sé fjöldinn hátt í 4000. Flestir Íslandsmeistararnir koma frá körfuknattleiksdeildum UMFN og Keflavíkur en sundfólkið er líka mjög öflugt. Segja má að á þessum 20 árum hafi náðst Íslandsmeistaratitill í nánast öllum þeim íþróttagreinum sem stundaðar eru innan ÍRB. Þá eru ótaldir allir bikarmeistaratitlarnir, en þeir skipta hundruðum.