Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

U16 landslið Íslands Evrópumeistari í C-deild kvenna
Sunnudagur 26. júlí 2015 kl. 09:11

U16 landslið Íslands Evrópumeistari í C-deild kvenna

-7 af 12 stelpum úr Njarðvík og Keflavík.

U16 ára stelpurnar í íslenska landsliðinu í körfubolta urðu Evrópumeistarar í C-deild kvenna 2015. Leikið var í Andorra í ár og er skemmst frá því að segja að þær unnu alla leiki sina örugglega. Sjö af tólf leikmönnum koma úr liðum Njarðvíkur og Keflavíkur og þjálfararnir einnig.

Íslensku stelpurnar léku við Andorra í úrslitaleik mótsins í fyrrakvöld. Það var gríðarleg spenna í loftinu í íþróttahöllinni í Andorra fyrir úrslitaleik Íslands gegn Armeníu. Það var sem armenski björninn væri vakinn af værum blundi því það var allt annað að sjá til armenska liðsins í upphafi leiks, en í leik þeirra í gær gegn Möltu. Þær mættu ákveðnar til leiks og gáfu okkar stelpum ekkert eftir í fyrsta leikhluta.  Liðin skiptust á að hafa forystu í leikhlutanum, en Ísland komst yfir með harðfylgi og leiddum 18:15 að honum loknum.

Baráttan hélt áfram í 2. leikhluta en Ísland jók forystuna og leiddi í hálfleik 33:24. Tríóið með töglin, þær Katla Rún, Dagbjört og Jónína fóru fyrir liðinu í fyrri hálfleik og skoraðu 12 stig í hálfleiknum, en þær Karlsdætur 14 stig. Okkar stúlkur voru mun ákveðnari og voru komnar með 12 villur í hálfleik gegn aðeins 2 frá Armeníu.

Í hálfleik fór Margrét þjálfari með hina góðkunnu vísu „Lok, lok og læs og allt í stáli“ fyrir stúlkurnar. Þær skildu vísuna og skelltu í lás í 3. leikhluta. Ísland skoraði 19 stig í röð og gerði nánast út um leikinn, en þær Armensku skoruðu ekki í rúmar 7 mínútur í leikhlutanum. Eftirleikurinn var auðveldur fyrir okkar stúlkur sem sigldu í land öruggum sigri 76:39.

Dagbjört og Hera létu til verulega til sín taka í seinni hálfleiknum. Dagbjört var stigahæst í leiknum með 16 stig, 2 fráköst og 4 stoðsendingar, Katla Rún var með 15 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar og Hera var með 11 stig, 2 fráköst og 2 stoðsendingar. Leikmaður mótsins, Keflavíkurmærin Þóranna Kika var róleg í stigaskorun í leiknum með 2 stig, en hirti 10 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal 5 boltum. Eins og áður komust allar stelpurnar á blað í leiknum og fullyrða má að sigur liðsins á þessu móti var fyrst og fremst sigur liðsheildarinnar.

Þær Dagbjört og Þóranna Kika voru valdar í úrvalslið mótsins og Þóranna Kika var leikmaður mótsins. Frábær árangur hjá íslenska liðinu sem ruddi brautina fyrir næsta u16-lið sem kemur til með að spila ári í B-riðli þar sem fullyrða má að þeir eigi svo sannarlega heima.

Lið U16 stúlkna:
Andrea Einarsdóttir · Keflavík
Anna Soffía Lárusdóttir · Snæfell
Erna Freydís Traustadóttir · Njarðvík
Birta Rún Ármannsdóttir · Njarðvík
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · KR
Hera Sóley Sölvadóttir · Njarðvík
Hulda Ósk Bergsteinsdóttir · Njarðvík
Jónína Þórdís Karlsdóttir · Ármann
Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík
Ragnheiður Björk Einarsdóttir · Hrunamenn
Þóranna Kika Hodge-Carr · Keflavík
Þórdís Jóna Kristjánsdóttir · Hrunamenn

Þjálfari: Margrét Sturlaugsdóttir
Aðstoðarþjálfari: Atli Geir Júlíusson

Public deli
Public deli