HSS
HSS

Íþróttir

Tvöfalt tap Grindavíkur fyrir norðan
Mánudagur 26. febrúar 2018 kl. 10:00

Tvöfalt tap Grindavíkur fyrir norðan

Grindavík fór norður um helgina og mætti Þór Akureyri í 1. deild kvenna í körfu. Liðið kom heim með tap úr báðum leikjunum en töluverð meiðsli eru í ungu liði Grindavíkur um þessar mundir.

Fyrri leikur liðanna fór fram á laugardaginn og tapaði Grindavík stórt  en lokatölur leiksins voru 66-36 fyrir Þór. Stigahæstu leikmenn Grindavíkur voru Angela Björg Steingrímsdóttir 9 stig, Svanhvít Ósk Snorradóttir 8 stig, Halla Emilía Garðarsdóttir 6 stig og Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir 6 stig og 5 fráköst.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Seinni leikur liðanna fór fram á sunnudaginn og var hann töluvert jafnari en sá fyrri. Grindavík byrjaði leikinn af krafti og var fyrsti leikhlutinn jafn og spennandi. Í hálfleik var staðan 38-47 fyrir Þór eftir norðanliðið mætti ákveðnari í annan leikhlutann. Þór var síðan ákveðnari aðilinn í seinni hálfleik og voru lokatölur leiksins 81-63, 18 stiga sigur Þórs. Stigahæstu leikmenn Grindavíkur í seinni leiknum voru Natalía Jenný með 16 stig og 8 fráköst, Halla Emilía, 16 stig og 8 fráköst, Elísabet María 8 stig og Svanhvít Ósk 8 stig.

Grindavík er í 4.sæti 1. deildarinnar eftir leiki helgarinnar.