Íþróttir

  • Tvöfalt hjá Keflvíkingum í ár
  • Tvöfalt hjá Keflvíkingum í ár
Miðvikudagur 26. apríl 2017 kl. 20:52

Tvöfalt hjá Keflvíkingum í ár

Íslandsmeistarar eftir öruggan sigur gegn þreföldum meisturum

Hið unga og skemmtilega Keflavíkurlið landaði Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta kvenna núna rétt í þessu með 20 stiga sigri á Snæfelli, 70-50, á heimavelli sínum. Þetta er sextándi titill liðsins og náði liðið að landa tvennunni í ár enda er bikartitill þegar í höfn. Magnaður árangur hjá þessu liði sem byggir á frábærri liðsheild. Ótrúlegt lið sem enginn átti von á að væri tilbúið til þess að berjast um titla enda var liðinu ekki einu sinni spáð inn í úrslitakeppni.

Keflvíkingar bundu þannig enda enda á þriggja ára sigurgöngu Snæfells með 3-1 sigri í einvígi liðanna.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þær keflvísku virkuðu sannfærandi og héldu haus þrátt fyrir mörg áhlaup Snæfellinga. Í fjarveru Birnu Valgerðar stigu aðrar ungar og efnilegar stelpur upp og léku án ótta.

Munurinn fór í niður í sex stig þegar skammt var eftir af leiknum en Keflvíkingar tóku þá rosalegt áhlaup og ekki leið á löngu þar til munurinn var orðinn 20 stig en þannig endaði leikurinn, 70-50.

Keflavík-Snæfell 70-50 (28-16, 14-15, 13-16, 15-3)

Keflavík: Ariana Moorer 29/19 fráköst/5 stoðsendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 13/7 fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 12, Erna Hákonardóttir 6, Þóranna Kika Hodge-Carr 6/5 fráköst, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 4/5 fráköst/7 varin skot, Kamilla Sól Viktorsdóttir 0, Eydís Eva Þórisdóttir 0, Elsa Albertsdóttir 0, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Svanhvít Ósk Snorradóttir 0, Irena Sól Jónsdóttir 0.

Snæfell: Aaryn Ellenberg 20/9 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 9/9 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 8/5 fráköst, Alda Leif  Jónsdóttir 5, Sara Diljá Sigurðardóttir 2, Rebekka Rán Karlsdóttir 2/5 fráköst, María Björnsdóttir 2, Andrea Björt Ólafsdóttir 2, Hrafnhildur Magnúsdóttir 0, Anna Soffía Lárusdóttir 0, Gunnhildur Gunnarsdóttir 0, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 0.