Bygg
Bygg

Íþróttir

Tvö töpuð stig Grindavíkur gegn KR
Fimmtudagur 20. september 2012 kl. 21:24

Tvö töpuð stig Grindavíkur gegn KR

Lánið leikur ekki við Grindvíkinga á knattspyrnuvellinum. Þeir tóku á móti KR síðdegis á Grindavíkurvelli þar sem fram fór leikur liðanna í 20. umferð Pepsi-deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Grindvíkingar voru yfir í leiknum, 2-0 fram á 76. mínútu. Það voru síðan komnar þrjár mínútur fram yfir venjulegan leiktíma þegar Grindvíkingar sáu á eftir sigri á KR og urðu að sætta sig við jafntefli.

Hér er gripið í frásögn Sport.is frá leiknum með góðfúslegu leyfi. „KR-ingar sem hafa verið afar daprir í undanförnum leikjum áttu erfitt uppdráttar til að byrja með á afar fámennum Grindavíkurvelli í kvöld. Þeir áttu sín færi í fyrri hálfleiknum en voru samt tveimur mörkum undir. Baldur Sigurðsson og Grétar Sigfinnur fengu m.a. sín færi til að skora en inn fór knötturinn ekki. Heimamenn, sem fyrir leikinn voru þegar fallnir, nýttu sín færi hins vegar til hins ýtrasta og Magnús Björgvinsson skoraði mörkin sem skildu liðin að eftir 45 mínútna leik. Bæði mörkin komu eftir sendingu inn fyrir vörn gestanna sem virtust varla vera mættir til leiks á köflum.

Síðari hálfleikur var rólegur og Vesturbæingar ekki líklegir til afreka. Emil Atlason minnkaði þó muninn með góðum skalla á 76.mínútu eftir fínan undirbúning Atla Sigurjónssonar. Eftir markið urðu gestirnir ögn sprækari en áður og Emil virtist staðráðinn í að jafna þennan fótboltaleik. Sem og hann gerði á 90.mínútu eftir slæm mistök Ray Anthony Jónssonar. Emil las leikinn vel og greip inn í þegar þurfti. Eini maðurinn með alvöru lífsmarki í liði gestanna í dag. KR-ingar, sem hafa verið í frjálsu falli nánast alla síðari umferð mótsins, fengu sitt 32. stig og sitja í 3.sæti deildarinnar. Grindvíkar sóttu þarna 11. stig sumarsins en þeir hljóta að líta á þetta sem tvö töpuð stig“.

Grindavík 2 – 2 KR (2-0)
1-0 Magnús Björgvinsson 25.mín.
2-0 Magnús Björgvinsson 33.mín.
2-1 Emil Atlason 76.mín.
2-2 Emil Atlason 90.mín.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson