TVÖ LIÐ ÚR GRINDAVÍK
				
				Fyrsta umferð Renaultbikarkeppninnar hefst á laugardaginn og leika Grindavíkurliðin tvö Grindavík og GG gegn Stjörnunni og Smára frá Varmahlið. Úrvalsdeildarlið Grindvíkinga fer í Garðabæinn og mætir það ósigruðu liði Garðbæinga úr 1. deildinni en Golfklúbbur Grindvíkur fær Varmahlíðarliðið Smára í heimsókn kl. 18. Eru bæði liðin sigurstrangleg.Bikarúrslitaleikur í fyrstu umferð Á sunnudagskvöld verður stórleikur fyrstu umferðar og að margra mati úrslitaleikur bikarkeppninnar í ár er Keflvíkingar og Njarðvíkingar mætast. Annað liðið verður áhorfandi það sem eftir er keppninnar, hitt líklegur sigurvegari.
				
	
				
					
						
					
					
						
					
				
				
				 								
			




 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				