Bygg
Bygg

Íþróttir

Tvö Íslandsmet féllu á Sparisjóðsmótinu
Föstudagur 16. maí 2008 kl. 21:20

Tvö Íslandsmet féllu á Sparisjóðsmótinu

Sparisjóðsmót ÍRB í sundi hófst í Vatnaveröld í Reykjanesbæ í dag þar sem Erla Dögg Haraldsdóttir bætti enn eitt Íslandsmetið. Þá var karlasveit ÍRB í boðsundi einnig í banastuði og settu kapparnir nýtt Íslandsmet í 4x100m. fjórsundi.
 
Erla Dögg Haraldsdóttir setti met í 200m bringusundi á tímanum 2:26.83 mín. Gamla metið átti Lára Hrund Bjargardóttir og var það síðan 2004 og var 2:30.64. Erla hafði sett stefnuna á að vera fyrst kvenna á Íslandi til að synda undir 2:30.00 í 200m bringusundi en gerði gott betur. 
 
Karlasveit ÍRB setti einnig Íslandsmet í 4x100m fjórsundi og var sveitin skipuð þeim Davíð Hildiberg Aðalsteinssyni, Guðna Emilssyni, Birkir Má Jónssyni og Árna Má Árnasyni. Tími sveitarinnar var 3:47.13 sem er bæting á gamla metinu um rúmlega 3 sekúndur, en það met var sett af sveit SH árið 1998. 
 
Þessar metatilraunir voru settar sérstaklega upp til að sýna keppendum 8 ára og yngri sem keppa á fyrsta degi Sparisjóðsmótsins vel útfærð og kröftug sund. Allt gekk upp og tvö met í höfn og áhorfendur fylgdust spenntir með og fögnuðu vel metasundunum.
 
VF-Myndir/ [email protected] Á efri myndinni er karlasveit ÍRB en á þeirri neðri er Erla Dögg ásamt yfirþjálfara ÍRB, Steindóri Gunnarssyni.
Bílakjarninn
Bílakjarninn