Tvíhöfði í Njarðvík
- Fyrsti leikur Ragnars
Njarðvíkingar blása til tvíhöfða í Domino´s-deildinni í kvöld í Ljónagryfjunni. Fyrri leikur kvöldsins er kl. 18:00 þegar Njarðvík og Stjarnan mætast í Domino´s-deild kvenna.
Þetta er fyrsti leikurinn á tímabilinu sem Ragnar Halldór Ragnarsson stýrir hjá Njarðvík en hann tók við þjálfun Njarðvíkurkvenna á dögunum eftir að stjórn KKD UMFN og Hallgrímur Brynjólfsson ákváðu að slíta samstarfi sínu. Njarðvíkurkonur hafa ekki fundið sigur í deildinni til þessa en Ragnar mun freistast til að ráða bót á því máli með liðinu í kvöld.
Þá mætast Njarðvík og topplið ÍR kl. 20:15 í Domino´s-deild karla en ÍR vann fyrri deildarleik liðanna með þriggja stiga mun og því von á miklum slag. ÍR er á toppi deildarinnar með 22 stig en Njarðvíkingar í 5. sæti með 16 stig.