Tvenn gullverðlaun hjá Nes á Íslandsmóti í boccia
Dagana 25. – 27. október s.l. var haldið Íslandsmót í boccia, einstaklingskeppni, á Akranesi. Nes mætti þar með fjölmennan hóp keppenda að venju. Að þessu sinni sendi félagið keppendur bæði úr eldri og yngri hópi iðkenda og var það stærsti hópurinn frá einu félagi sem keppti á mótinu. Á mótinu kræktu Nesarar í tvenn gullverðlaun sem Vilhjálmur Jónsson fékk í 4. deild og Guðmundur Ingi Einarsson fékk í 7. deild, eitt silfur sem Róbert Aron Ólafs fékk í 4. deild og eitt brons sem Elínrós Benediktsdóttir fékk í 2. deild. Aðrir keppendur frá félaginu stóðu sig einnig mjög vel þótt ekki kæmust þeir á pall. Var haft á orði hvað yngstu þátttakendurnir frá félaginu væru prúðir.