Bygg
Bygg

Íþróttir

Tveir Suðurnesjamenn í hópnum hjá Frey
Miðvikudagur 9. október 2013 kl. 10:58

Tveir Suðurnesjamenn í hópnum hjá Frey

Sigurbergur og Hilmar á leið til Sviss.

Keflvíkingurinn Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U15 karla í knattspyrnu, hefur valið 18 manna hóp leikmanna sem leika í Sviss í undankeppni fyrir Ólympíuleika ungmenna á næstunni. Meðal leikmanna eru tveir Suðurnesjamenn, Sigurbergur Bjarnason frá Keflavík og Hilmar Andrew McShane frá Grindavík.

Ísland mætir Finnum, laugardaginn 19. október, og strax á eftir leika Moldóva og Armenía.  Sigurvegararnir úr þessum viðureignum mætast svo mánudaginn 21. október og keppa þá um sæti í Nanjing á næsta ári. Fjórar þjóðir leika um eitt laust sæti á þessum Ólympíuleikum sem fara fram í Nanjing í Kína á næsta ári.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hér að neðan má sjá viðtal sem Víkurfréttir tóku við Sigurberg eftir að Keflvíkingar urðu Íslandsmeistarar í 4. flokki á dögunum.