Bygg
Bygg

Íþróttir

Tveir sigrar og eitt tap í Danmörku
Föstudagur 23. apríl 2004 kl. 10:58

Tveir sigrar og eitt tap í Danmörku

Keflvíkingar unnu stórsigur á danska liðinu Helsingör í síðasta leiknum í æfingaferð þeirra til Danmerkur. Lokastaðan var 5-1 þar sem Keflvíkingar gerðu út um leikinn með góðum kafla í seinni hálfleik.

Keflvíkingar hófu ferðina með tapi í fyrsta leik fyrir 2. deildar liðinu Holbæk, 1-0, en unnu öruggan 3-0 sigur á Brönshöj á miðvikudaginn.

Liðið snýr aftur heim annað kvöld.
Bílakjarninn
Bílakjarninn