Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Tveir Serbar til Reynis
Mánudagur 3. maí 2010 kl. 22:54

Tveir Serbar til Reynis

Reynir Sandgerði, sem leika í 2. deild, hefur samið við serbnesku leikmennina Miza Kecman og Alexandar Stojanovic, að því greint er frá á vefnum Fótbolti.net.


Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild og koma þeir til landsins í byrjun maí fyrir fyrsta leik liðsins í Íslandsmótinu. Kezman er 25 ára varnar og miðjumaður en hann hefur leikið í heimalandi sínu Serbíu við góðan orðstír, síðast með Radnicki Fc í annarri deildinni. Stojanovic er stór og öflugur sóknarmaður en þessi 23 ára gamli leikmaður er 188 cm á hæð. Stojanovic lék síðast með Palilulak frá Belgrad í Serbíu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Frétt frá Fótbolta.net.