Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Tveir Grindvíkingar fóru holu í höggi
Miðvikudagur 18. maí 2016 kl. 11:41

Tveir Grindvíkingar fóru holu í höggi

Tveir grindvískir kylfingar, þeir Bergvin Ólafarson og Hólmar Ómarsson Waage, fóru á dögunum holu í höggi á Húsatóftavelli. Bergvin var að ná þessum árangri í fyrsta sinn en Hólmar í þriðja sinn. Grindavík.is greinir frá.

Bergvin fór holu í höggi á 18. holu vallarins, sem er 112 metra lög og sló hann með 52 GR vokey easy kylfu. Hólmar aftur á móti var á 4. braut sem er 287 metrar og par fjórir. Hólmar notaði Titleist 983k driver. Öll skiptin sem Hólmar hefur farið holu í höggi hafa verið á par fjórum holum, sem verður að teljast nokkuð merkilegur árangur, en algengast er að kylfingar nái þessum áfanga á par þrjú holum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024