Bygg
Bygg

Íþróttir

Tveimur leikmönnum frá Njarðvík boðið að leika á móti í Noregi
Mánudagur 12. janúar 2009 kl. 09:54

Tveimur leikmönnum frá Njarðvík boðið að leika á móti í Noregi

Tveir af efnilegustu leikmönnum okkar þeir Andir Fannar Freysson og Frans Elvarsson eru nú staddir í Noregi í boði norska úrvalsdeildarfélagsins Aalasund þar sem þeir munu taka þátt í móti fyrir unglingalið sem félagið stendur fyrir og hefst miðvikudaginn 14. janúar og lýkur sunnudaginn 18. Andri Fannar mun leika með unglingalið Aalasund en Frans mun leika með norska liðiðnu Hödd, þeir munu einnig æfa og taka þátt í öllum undirbúningi liðan í mótinu. Auk Aalasuns taka þátt í mótinu Brann, Hødd, Vålerenga, AaFK, Lyn Oslo, Rosenborg og Strømsgodset. Þetta er spennandi verkefni fyrir strákana, segir á heimasíðu Njarðvíkur, umfn.is.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Báðir þessir piltar spiluðu með unglingalandsliðum Ísland í fyrra. Frans spilaði 3 leiki með U-19 og Andri Fannar 6 leiki með U-17. Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur Njarðvíkinga að geta fengið að senda leikmenn í verkefni sem þetta erlendis og er viðurkenning til okkar fyrir að hafa unnið mjög gott unglingastarf á liðnum árum. Það er von okkar að geta í framtíðinni sent leikmenn í verkefni sem þessi. Með þeim í þessari ferð er einnig Freyr Sverrisson faðir Andra.


Hjá Aalasund er einn íslenskur leikmaður Haraldur Freyr Guðmundsson sveitungi okkar.


Heimasíða Aalesund