Bygg
Bygg

Íþróttir

Tvær úr Keflavík í úrvalsliðinu
Mánudagur 9. mars 2009 kl. 20:40

Tvær úr Keflavík í úrvalsliðinu

Úrvalslið Iceland Express deildar kvenna í umferðum 12-20 var kunngjört í dag þar sem leiktjórnandi Hauka, Slavica Dimovska, var valinn besti leikmaður umferðanna. Við sama tilefni voru leikmenn og þjálfarar KR, Hamars, Keflavíkur og Hauka mættir á Hilton Nordica hótel í Reykjavík þar sem línurnar voru lagðar fyrir undanúrslitin í Iceland Express deild kvenna en þau hefjast á morgun með viðureign Hauka og Hamars kl. 19:15 að Ásvöllum á morgun. Karfan.is greinir frá þessu.

Úrvalsliðið skipuðu:

Slavica Dimovska – Haukar (besti leikmaður)
Pálína Gunnlaugsdóttir – Keflavík
Birna Valgarðsdóttir – Keflavík
Sigrún Ámundadóttir – KR
Signý Hermannsdóttir – Valur

Dugnaðarforkurinn að þessu sinni var hin unga og efnilega Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir sem er leikmaður KR en eins og sönnum dugnaðarforki sæmir þá tók hún við verðlaunum sínum með laglegt glóðarauga!

Yngvi Gunnlaugsson var síðan valinn besti þjálfarinn en hann er þjálfari Hauka. Henning Henningsson aðstoðarþjálfari Hauka tók við viðurkenningunni fyrir hönd Yngva sem átti ekki kost á því að mæta í hófið.



Eins og fyrr segir hefjast undanúrslitin í kvennaflokki á morgun með leik Hauka og Hamars en Keflavík og KR hefja sína rimmu á miðvikudag. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst áfram í úrslitin. Haukar hafa heimavallarréttinn gegn Hamri og Keflavík hefur heimavallarréttinn gegn Keflavík.

Þeir Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdastjóri KKÍ og Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður KKÍ greindu frá því á fundinum að Iceland Express skotið verður á sínum stað og því mun áhorfendum gefast kostur á að vinna sér ferð út í heim með Iceland Express. Þá verður Iceland Express hringlið einnig í boði en það verður á völdum leikjum og voru þeir ansi margir sem fóru flatt á hringlinu á síðustu leiktíð.

[email protected]

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Efri myndin: Fulltrúar liðanna sem leika í undanúrslitum þetta árið

Neðri myndin: Úrvalslið kvenna í umferðum 12-20. Á myndina vantar Birnu Valgarðsdóttur