Trukkurinn í toppformi
Sturla Ólafsson, eða „Trukkurinn“ úr Reykjanesbæ, bar sigurðorð af 8 öðrum kraftakörlum í keppninni Sterkasti maður Íslands (-105kg) sem fram fór á dögunum. Hann hefur náð prýðisgóðum árangri í kraftakeppnum sumarins og varð t.a.m. í fjórða sæti opnum flokki í áðurnefndri keppni þar keppt er óháð þyngdarflokki. Um síðustu helgi náði hann svo 6. sæti af 11 í Vestfjarðavíkingnum.
Stulli segir árangurinn í Vestfjarðavíkingnum vel viðunandi enda hafi hann verið lang léttastur keppenda. Sigurinn í Sterkasti maður Íslands hafi hins vegar verið afar ánægjulegur.
„Danny Jones hjá Denver Broncos kom hingað til lands til að taka þátt í keppninni en hann er á ferð um heiminn til að taka þátt í alls kyns keppnum vegna þáttargerðar hjá Travel Channel, sem sýna mun frá keppnninni. Danny var sá sem veitti mér hörðustu keppnina þannig að við tveir vorum nokkuð áberandi. Ég tel að það verði góð auglýsing fyrir mig en ég stefni á keppnir erlendis m.a. í Sterkasti maður heims í mínus 105kg flokki.
Það eru nokkur mót á döfinni í sumar um allt land sem ég stefni á að taka þátt í. Ég hef aldrei undirbúið mig eins vel fyrir keppnistímabilið eins og nú. Byrjaði markvisst á því í fyrravor eftir að ég náði mér af meiðslum sem ég varð fyrir þegar ég brotlenti mótorhjólinu mínu. Gekk að vísu ágætlega síðasta sumar en setti samt markið á sumarið nú og að vinna mínus 105kg í Sterkasti maður Íslands. Það tókst,“ svarar Stulli aðspurður um það sem er á döfinni hjá honum.
-Þannig að þú ert bara brattur?
„Jájá, það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Það er nú ekki svo margt sem hægt er að vera bjartsýnn yfir í dag,“ svarar Trukkurinn og hlær.