Troðslukóngur Íslands frá Grindavík
Hinn árlegi Stjörnudagur Körfuknattleikssambands Íslands fór fram í Sláturhúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ í dag. Íslensku karla- og kvennalandsliðin mættu þá úrvalsliðum erlendra og íslenskra leikmanna.
Úrvalsliðið hafði sigur í kvennaflokki 78-100 og höfðu þar nokkra yfirburði en landsliðið lék án tveggja sterkra leikmanna, þeirra Maríu Ben Erlingsdóttur og Helenu Sverrisdóttur en þær stunda nám í Bandaríkjunum.
Í karlaflokki varð það landsliðið sem landaði naumum 137-136 sigri í leiknum sem fór fjörlega af stað þar sem landsliðið sýndi hverja glæsitroðsluna af annarri.
Troðslukeppni fór svo fram í hálfleik á karlaleiknum þar sem Grindvíkingurinn öflugi Ólafur Ólafsson fór með sigur af hólmi en hann er sannur háloftafugl og klöppuðu áhorfendur honum óspart lof í lófa.
VF-Mynd/ [email protected] – Ólafur á sjöundu hæð en hann gladdi gesti í Sláturhúsinu í dag.