Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Íþróttir

Torfæra AÍFS í dag
Ljósmynd frá AÍFS.
Laugardagur 21. júlí 2012 kl. 06:30

Torfæra AÍFS í dag

Nú gefst landanum loksins tækifæri að kíkja á skemmtilegustu torfærukeppni sumarsins sem haldin verður í dag í Jósepsdal kl. 13:00 (á móti Litlu kaffistofunni).

Akstursíþróttafélag Suðurnesja heldur keppnina í samstarfi við Bíla & Hjól. Í tilefni að 30 ára afmæli félagsins mun helmingur af ágóða keppninnar renna beint til Umhyggju, styrktarfélag langveikra barna.

Keppendur og mótshaldarar skora á sem flesta að kíkja á keppnina og styðja verðugt málefni og fá góða skemmtun í leiðinni.

Þetta er síðasta keppni sumarsins á suðvesturhorninu og því tilvalið að bera tryllitækin augum. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri en aðgangseyrir er 1500 kr. fyrir fullorðna.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar