Töpuðu í markasúpu

Fyrsta mark gerði Nína Ósk Kristinsdóttir á 2. mínútu leiksins og 10 mínútum síðar bætti Danka Podovak öðru markinu við. Aðeins þremur mínútum síðar gerði Nína sitt annað mark og Keflavík komið í 3-0 eftir aðeins 15 mínútna leik.
KR konur náðu að minnka muninn í 3-2 fyrir leikhlé en jöfnuðu svo snemma í seinni hálfleik 3-3. Heimakonur komust svo yfir skömmu seinna 4-3 en Ólöf Helga Pálsdóttir jafnaði 4-4 tveimur mínútum eftir að KR hafði komist yfir. Staðan fór úr 3-2 fyrir Keflavík í 4-4 á aðeins 6 mínútum í leiknum.
Sigurmarkið kom svo á 75 mínútu og fögnuðu KR konur sínum fyrsta sigri í sumar.
Staðan í deildinni