HSS
HSS

Íþróttir

Toppslagur í Sandgerði í kvöld - Grillveisla fyrir leik
Föstudagur 7. ágúst 2009 kl. 12:16

Toppslagur í Sandgerði í kvöld - Grillveisla fyrir leik

Kátt verður á hjalla í Sandgerði síðar í dag þar sem knattspyrnudeild Reynis og Hvíti herinn, stuðningsmannasveit liðsins, taka höndum saman og bjóða í grillveislu á nýja tjaldsvæðinu.


Þetta er líður í upphitun fyrir toppslag Gróttu og Reynis í 2. deild karla í knattspyrnu, sem hefst kl. 19 á Sparisjóðsvellinum, en það er von aðstandenda að Sandgerðingar fjölmenni á leikinn og styðji sína menn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Guðmundur Skúlason, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar, sagði í samtali við VF að hann lofaði miklu fjöri.


„Okkur líst mjög vel á leikinn. Allir eru heilir hjá okkur og við erum bjartsýnir á góð úrslit.“


Reynismenn hófu leiktíðina með miklum látum þar sem þeir voru við það að stinga önnur lið af, en hafa undanfarið verið að tapa stigum og eru nú jafnir Gróttu á toppi deildarinnar, en með lakara markahlutfall.


„Þetta er mjög jöfn deilda þar sem allir geta í raun unnið alla,“ sagði Guðmundur. „Þetta var oft að detta með okkur á lokamínútunum í upphafi sumars en svo snerist dæmið við og við fórum að tapa stigum, auk þess sem við áttum nokkra erfiða útileiki, en við erum staðráðnir í að sigra í kvöld og koma okkur aftur á toppinn.“