Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Toppslagur í Keflavík í kvöld
Mánudagur 17. janúar 2005 kl. 17:18

Toppslagur í Keflavík í kvöld

Keflavík og Snæfell nætast í toppslag Intersport-deildarinnar í kvöld. Leikurinn fer fram í Sláturhúsinu við Sunnubraut og hefst stundvíslega kl. 19.15.

Liðin hafa mæst tvisvar í vetur og hafa unnið sitthvorn leikinn á heimavelli og verður fróðlegt að sjá hvernig fer í kvöld. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, spáir hörkuleik. „Ég er alveg viss um að Keflavík hefur sigur en leikurinn verður mjög spennandi. Það mun setja þá í góða stöðu á toppnum sérlega gegn Snæfelli sem þarf að vinna tvo leiki á þá.“

Einar bætir því við að Keflvíkingar séu afar erfiðir heim að sækja og gefi ekki stigin auðveldlega eftir. „Þeirra árangur talar sínu máli. Þeir hafa ekki tapað deildarleik heima síðan í janúar 2003 og það segir allt sem segja þarf.“

Trommusveitin dygga mun að sjálfsögðu fylkjast að baki sínum mönnum í kvöld og segir Jóhann Davíð, betur þekktur sem Joey Drummer, að þeir verði í gírnum í kvöld. „Við vinnum þetta.Það er engin spurning, en það verður tæpt. Við verðum hins vegar að fá sigur til að koma okkur í gírinn fyrir Evrópuleikinn á fimmtudag.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024