Töp hjá Suðurnesjamönnum
Keflavík og Njarðvík úr leik í Lengjubikarnum
Hvorki Keflvíkingum né Njarðvíkingum tókst að tryggja sér sæti í undanúrslitum karla í körfubolta í gær. Keflvíkingar töpuðu gegn Fjölnismönnum 71-58 í leik sem Fjölnismenn stjórnuðu frá upphafi. Guðmundur Jónsson var atkvæðamestur Keflvíkinga í leiknum með 17 stig.
Í Vesturbænum töpuðu Njarðvíkingar gegn KR, 92-81. Þar var Logi Gunnarsson stigahæstur gestanna með 23 stig en þeir Dustin Salisbery og Maciej Baginski skoruðu 16 stig hvor.
Tölfræðin:
Keflavík: Guðmundur Jónsson 17, Davíð Páll Hermannsson 12/6 fráköst, Gunnar Einarsson 10, Damon Johnson 9/5 fráköst, Valur Orri Valsson 6, Aron Freyr Eyjólfsson 2, Reggie Dupree 2/4 fráköst, Eysteinn Bjarni Ævarsson 0, Birkir Örn Skúlason 0, Andrés Kristleifsson 0, Aron Freyr Kristjánsson 0, Arnar Freyr Jónsson 0.
Njarðvík: Logi Gunnarsson 23, Dustin Salisbery 16/7 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 16, Mirko Stefán Virijevic 9/6 fráköst, Ólafur Aron Ingvason 6/5 fráköst, Óli Ragnar Alexandersson 4, Oddur Birnir Pétursson 3/4 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 3, Hjörtur Hrafn Einarsson 1/4 fráköst, Rúnar Ingi Erlingsson 0, Ragnar Helgi Friðriksson 0, Magnús Már Traustason 0.