HSS
HSS

Íþróttir

Tómas Ingi hefur samið við Þrótt
Tómas Ingi í leik með Þrótti
Miðvikudagur 9. nóvember 2016 kl. 13:56

Tómas Ingi hefur samið við Þrótt

Knattspyrnudeild Þróttar í Vogum hafa samið við Tómas Inga Urbancic um að leika með liðinu á næsta tímabili. Tómas kom til Þróttar sem lánsmaður á síðasta sumri og skoraði 7. mörk í 8 leikjum. Tómas er 20 ára og kemur frá HK en hann var einnig á mála hjá Reading á sínum tíma.

Að sögn Brynjars Gestssonar, þjálfara Þróttar, er þetta mikill liðsstyrkur fyrir komandi tímabil. „Tómas er ekki bara góður leikmaður, yngri iðkendur félagsins fá glæsilega fyrirmynd til að líta upp til í framtíðinni. Fyrir hjá félaginu er ákveðinn kjarni leikmanna með gæði og markmið okkar verður að halda og bæta við metnaðarfullum leikmönnum, og fá unga leikmenn til félagsins sem langar að bæta sig sem knattspyrnumenn og taka þátt í því að koma Þrótti Vogum á kortið,“ sagði Brynjar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þróttur Vogum spilar í 3. deildinni og endaði liðið í fimmta sæti með 27 stig í sumar. Félagið kom upp úr 4. deild haustið 2015.

Tómas Ingi við undirritun samningsins.