Tjaldið hrundi í Reykjaneshöllinni – frestað hjá Víði enn og aftur
Það kom upp óvenjulegt atviki í Reykjaneshöllinni í fyrrakvöld þegar Víðir úr Garði átti að mæta Álftenesi í Fótbolti.net mótinu. Þegar leikmenn liðanna voru við það að fara að heilsast þá hrundi tjaldið niður sem skilur vallarhelmingana að. Fresta þurfti því leiknum.
Þetta er þriðji leikur Víðismanna í röð sem þarf að fresta. Fyrst gegn Fjarðabyggð vegna manneklu hjá Fjarðabyggð, síðan gegn Augnabliki vegna þess að gervigrasvöllurinn í Fagralundi var frosinn og loks geng Álftanesi í fyrrakvöld.