HSS
HSS

Íþróttir

Tíundi sigurleikur Keflavíkur í röð
Sara Rún Hinriksdóttir var með 21 stig í kvöld. Mynd/Karfan.is
Miðvikudagur 21. nóvember 2012 kl. 23:05

Tíundi sigurleikur Keflavíkur í röð

Keflavikurkonur sigruðu sinn 10. leik í röð í kvöld í Dominos-deild kvenna og að þessu sinni voru það KR stúlkur..

Keflavikurkonur sigruðu sinn 10. leik í röð í kvöld í Dominos-deild kvenna og að þessu sinni voru það KR stúlkur sem urðu fórnarlömbin. Allt stefndi í það að sigurinn yrði nokkuð þægilegur en KR konur hættu aldrei að slást og má segja að það hafi farið um alla í húsinu þegar Sigrún Ámundadóttir setti niður þrist og kom stöðunni í 76:73 þegar um  hálf mínúta var til leiksloka.  Það fór hinsvegar þannig að Keflavíkurstúlkur voru skynsamar í lokinn og náðu að klára dæmið með sigri.

Keflavík-KR 80-73 (23-12, 27-16, 14-18, 16-27)

Keflavík: Jessica Ann Jenkins 29/9 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 21/5 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 8/8 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 7, Pálína Gunnlaugsdóttir 6, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 4, Sandra Lind Þrastardóttir 4/5 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 1.

Staðan í deildinni:
1       Keflavík        10      10      0       782     -       625     20
2       Snæfell 10      8       2       768     -       617     16
3       KR      10      6       4       676     -       666     12
4       Valur   10      5       5       671     -       657     10
5       Haukar  10      3       7       663     -       732     6
6       Grindavík       10      3       7       655     -       735     6
7       Njarðvík        10      3       7       674     -       748     6
8       Fjölnir 10      2       8       682     -       791     4

Bílakjarninn
Bílakjarninn