Tíu fulltrúar frá Keflavík í yngri landsliðum í körfubolta
Undir 16 ára og 18 ára landslið karla og kvenna leika nú á Norðurlandamótinu í körfubolta í Finnlandi, sem er fyrsta landsliðsverkefni sumarsins. Mikið af efnilegum ungum leikmönnum koma úr Keflavík auk þess að Friðrik Ingi, þjálfari karlaliðsins, og Kristjana Jónsdóttir, þjálfari yngriflokka Keflavíkur, eru þjálfarar landsliðanna.
Það sem af er mótsins hafa liðin leikið þrjá leiki gegn Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Leikjauppröðun og lifandi tölfræði leikjanna má sjá hér auk þess að beina útsendingu frá leikjunum má sjá hér.