Tilkynnt um val á íþróttamanni ársins
– í Reykjanesbæ á gamlársdag
	Á gamlársdag verður kunngjört um val í íþróttakonu og íþróttakarli Reykjanesbæjar. Athöfnin hefst kl.13:00 og verður í íþróttahúsinu í Njarðvík.
	
	Sú nýbreytni var samþykkt á síðasta þingi ÍRB að velja konu og karl. Á sama tíma verða iðkendur sem urðu  Íslandsmeistarar á árinu heiðraðir.
	
	Íþróttabandalag Reykjanesbæjar bíður alla velkomna á þessa hátíðlegu stund á síðasta degi ársins, segir í tilkynningu.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				