Bygg
Bygg

Íþróttir

Laugardagur 24. janúar 2004 kl. 14:06

Þýskur markmaður á leið til Keflavíkur

Eftir nokkurra daga þreifingar er ljóst að þýski markvörðurinn Lutz Pfannenstiel, 31 árs, mun æfa með Keflavík á næstunni og keppa með þeim á Iceland Express-mótinu um næstu helgi.

Pfannenstiel þessi hefur gert víðreist um heiminn á síðustu árum. Síðasta ár lék hann með Bærum í norsku 1. deildinni en þar áður með enska utandeildaliðinu Bradford Park Avenue og var um tíma í röðum Nottingham Forest, Hann hefur auk þess spilað með liðum í Þýskalandi, Singapúr, Nýja-Sjálandi, Malasíu, Suður-Afríku, Belgíu, Finnlandi og Möltu. Hann hefur upplifað ýmislegt, samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins, meðal annars verið fluttur nær dauða en lífi á sjúkrahús í Englandi eftir árekstur við mótherja, og í Singapúr sat hann hálfan fjórða mánuð í fangelsi eftir að hann og fleiri leikmenn voru taldir hafa þegið mútur í tengslum við getraunir.

Að undanförnu hefur hann æft með 2. deildar liði Barnsley í Englandi undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Jón Pétur Róbertsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar, segir í samtali við Víkurfréttir að Guðjón hafa mælt sérstaklega með Pfannenstiel og bætti við að hann hlyti alla veganna að vera í góðu formi eftir æfingar hjá Guðjóni. Leikmaðurinn er væntanlegur til landsins á þriðjudag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn