Þróttur vill halda unglingalandsmót 2012
Ungmennafélagið Þróttur í Vogum hefur hug á að halda unglingalandsmót UMFÍ árið 2012 í samstarfi við félagasamtök í bæjarfélaginu og hefur lagt inn umsókn þar að lútandi. Svars verður að vænta næsta sumar, að sögn Ríkharðs Bragasonar, formanns Þróttar. Árið 2012 á Þróttur 80 ára afmæli og þykir forsvarsmönnum félagsins vel við hæfi að minnast þess með mótshaldinu.
„Við erum búnir að vera í mikilli og skemmtilegri vinnu í samstarfi við bæjaryfirvöld um skipulagninu og hönnun á mótssvæðinu og er sú vinna langt komin“ segir Ríkharður.
Byggja þarf nýjan keppnisvöll, sem hvorutveggja í senn mun þjóna hlutverki knattspyrnu- og frjálsíþróttavallar. Í kringum hann þarf að gera hlaupabrautir, æfingasvæði og fleira. Auk þess þarf að huga að nýjum tjaldsvæðum til að anna þeim mikla mannfjölda sem jafnan sækir landsmótið. Um fjögur þúsund þátttakendur hafa verið á unglingalandsmótinu síðustu ár. Í það heila hafa um 10 þúsund manns sótt mótin.
Að sögn Ríkharðs er ekki búið að reikna út endanlegar kostnaðartölur. Á hitt ber að líta að bæjarfélagið sér með þessu ákveðin tækifæri í uppbyggingu íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu til framtíðar.
„Það hefur verið mikil aukning í íþróttastarfinu á undanförnum árum þannig að þörfin fyrir bætta íþróttaaðstöðu er orðin aðkallandi. Við teljum að þetta verði einnig mikil lyftistöng fyrir sveitarfélagið og gott tækifæri til að kynna þetta frábæra sveitarfélag sem Vogar eru,“ segir Ríkharður.
„Óháð unglingalandsmóti þá þurfum við að fara í uppbyggingu á íþróttavallarsvæði. Vinna við deiliskipulag er í gangi og það er svona fyrsta skrefið í því hvernig menn sjá fyrir sér framtíðina í þessu. Það er orðið aðkallandi að fara huga að fyrstu skrefum og þá með tilliti til þess hvað sé mest aðkallandi. VIð viljum fara rólega og markvisst í að byggja þetta upp,“ sagði Birgir Örn Ólafsson, forseti bæjarstjórnar í samtali við VF.
--
Mynd/OK - Vogar.