Þróttur V. án stiga frá Dalvík
Það stefndi í markalaust jafntefli á Dalvíkurvelli í dag þegar Dalvík/Reynir fékk Þrótt úr Vogum í heimsókn í 6. umferð 2. deildar karla.
Leikurinn var jafn og spennandi allt fram undir lokin, en það var ekki fyrr en á 88. mínútu sem dró til alvöru tíðinda. Þá mætti Máni Dalstein Ingimarsson og skoraði eina mark leiksins fyrir heimamenn við mikinn fögnuð þeirra 220 áhorfenda sem lögðu leið sína á völlinn.
Lokatölur urðu 1–0 fyrir Dalvík/Reyni, sem hrifsaði til sín öll þrjú stigin á lokamínútunum í þessari hörkuviðureign.









