Þróttur tók öll stigin með marki á lokamínútu
Svekkjandi tap var niðurstaðan í leik Keflavíkur og Þróttar Reykjavík í Bestu deild kvenna í knattspyrnu sem fram fór á HS Orkuvellinum í kvöld. Leikurinn fer ekki í sögubækurnar fyrir gæði en úrslitin féllu með því liði sem gerði færri mistök.
Það vantaði neistann í leikmenn í kvöld og fátt markvert var á boðstólum fyrir utan veðrið sem var ákjósanlegt fyrir fótbolta. Hvorugu liði tókst að skapa sér álitleg færi fyrr en skyndilega fékk sóknarmaður Þróttar boltann eftir laka sendingu frá Caroline Mc Cue Van Slambrouck í vörn Keflvíkinga. Hún þökkuðu gott boð og skoraði fram hjá Samantha Murphy í marki Keflavíkur (22'). Markið alger óþarfi og kom upp úr þurru. Murphy varði svo glæsilega á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar sóknarmaður Þróttar komst ein á móti henni og Keflavík hefði því hæglega getar verið tveimur mörkum undir í hálfleik.
Seinni hálfleikur var einnig hálfkraftlaus en Keflvíkingar færðu sig þó aðeins framar á völlinn og freistuðu þess að jafna. Það tókst á 60. mínútu þegar Aníta Lind Daníelsdóttir fékk boltann eftir lélega sendingu, nú úr vörn Þróttar. Aníta beið ekki boðanna heldur sendi boltann fyrir mark Þróttar þar sem Dröfn Einarsdóttir skallaði í netið, staðan 1:1 og háftími eftir.

Eftir jöfnunarmarkið færðu gestirnir sig hærra á völlinn og pressuðu á Keflvíkinga, þær ætluðu að sækja sigur en færin létu á sér standa. Í blálokin sendu Þróttarar háan bolta inn í teiginn fjær, fyrirgjöfin virtist ekki hættulleg og Murphy kallaði að hún ætti boltann en hún misreiknaði fyrirgjöfina illilega og sóknarmaður Þróttar skallaði í autt markið (90'). Þróttarar komnir yfir og aðeins uppbótatíminn eftir. Það dugði Keflavík ekki og sárgrætilegt tap niðurstaðan.

Jóhann Páll Kristbjörnsson, ljósmyndari Víkurfrétta, var á vellinum og tók meðfylgjandi myndir.